News

28
des

Velta á markaði


Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 17. desember til og með 23. desember 2010 var 79. Þar af voru 67 samningar um eignir í fjölbýli og 12 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 1.933 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,5 milljónir króna.
Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli og 1 samningur um sérbýli. Heildarveltan var 53 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,6 milljónir króna.
Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 183 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,5 milljónir króna. 
Sjá nánar hér.

Deila á Facebook

Go back