News

11
jan

Ný stjórn Íbúðalánasjóðs

 


Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað nýja stjórn Íbúðalánasjóðs samkvæmt lögum um húsnæðismál. Nýr formaður stjórnarinnar er Katrín Ólafsdóttir, lektor í Háskólanum í Reykjavík, en hún tekur við formennsku af Hákoni Hákonarsyni. 


Stjórn Íbúðalánasjóðs er skipuð eftirtöldum fulltrúum: 

Katrín Ólafsdóttir, lektor, formaður 
Sjöfn Ingólfsdóttir, fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, varaformaður 
Jóhann Ársælsson, fyrrverandi alþingismaður 
Lárus L. Blöndal, hæstaréttarlögmaður 
Elín R. Líndal, framkvæmdastjóri 


Til vara: 
Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi 
Henný Hinz, hagfræðingur 
Steinar Harðarson, verkfræðingur 
Sigríður Á. Andersen, héraðsdómslögmaður 
Hákon Hákonarson, vélvirki 

Deila á Facebook

Go back