jan
Velta á markaði
![]()
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 14. janúar til og með 20. janúar 2011 var 29. Þar af voru 20 samningar um eignir í fjölbýli og 9 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 861 milljón króna og meðalupphæð á samning 29,7 milljónir króna.
Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Suðurnesjum* og var hann um sérbýli. Upphæð samnings var 27 milljónir króna.
Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli, 3 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 212 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21,2 milljónir króna.



