Partý Pakki

 

VEIÐIKEPPNI Á MILLI LIÐA

Við erum með 25 veiðistangir og hægt er að skipta upp í lið t.d. 12 saman sem veiða stjórborðs megin og
síðan aðrir 12 sem veiða bakborðsmegin. Skipsmennirnir stjórna keppninni sem stendur yfir í t.d. 40 mínútur og ýmis verðlaun geta þá verið í boði:
Stærsti fiskurinn
Minnsti fiskurinn
Flottasti veiðistíllinn
Slakasti árangurinn
Bestu afköst
o.s.frv.
Síðan taka skipsmenn hluta af fiskinum eftir þörfum og flaka og bein hreinsa og setja í álpappir með viðeigandi kriddi og meðlæti og setja á grillið ásamt hamborgurum og pylsum og þessu gert góð skil. Drykkir eru fánlegir um borð þannig að öllum ætti að líða vel og verðlauna afhending fer fram að matnum loknum.

Romantic fishing


MORÐGÁTA, DJ OG OPINN BAR

Það er um að gera að lyfta sér aðeins upp og skipta um gír af og til. Planaðu morðgátu með vinnufélögunum, eða skelltu þér í uppáhaldstímabilið þitt með þemapartýi og feldu fjársjóði víðsvegar um skipið. Um borð er hægt að spila góða tónlist og á dansgólfinu í neðri sal er hægt að sýna nýjustu sporin með tilþrifum.Fáðu hljómsveit sem spilar fyrir dansi, harmonikkuleikara, fiðlur, plötusnúð eða bara hvað sem til þarf til að koma fólkinu í gang. EYJASIGLINGAR OG GÓÐUR MATUR Svona túr er 3 tíma langur og ekki er farið langt út frá landi aðeins inn á sundin út af Kjalarnesi og inn á Hvalfjörð.Hugsanlega gæti heppnin verið með og hvalur gæti sést í túrnum, það er aldrei að vita.
 

Party on board ANDREA

Hægt er að fá pantaðan mat, fingramat, hlaðborð o.fl. frá veisluþjónustu
 

KVÖLDVERÐASIGLINGAR

Einnig viljum við upplýsa ykkur um matarsiglingartúra sem verða frámiðjum júní alla daga frá kl 20:20 þar sem siglt verður inn á sund og farið að Lundey og fuglalífið skoðað. Síðan verður skipið jafnvel stoppað á góðum veiðimiðum og þeim sem langar gefin kostur á að prófa smá veiði. Verðið með siglingu, veiði, fuglaskoðun og mat er 8,000 kr og ef heppnin er með þá getur hvalur sést í þessum ferðum sem sagt einn með öllu. Matseðill koksins mun sjást á heimasíðunni fyrir hverja viku í júní og  sætafjöldi verður 150 farþegar.
 

Nice interior

Borðapantanir í síma 562-2300 eða 897-8433.
Veitingasala um borð